Pípulagningaverktakar
með metnað og reynslu
Við hjá Tvíburar ehf. sinnum alhliða pípulagningaþjónustu svo sem viðgerðum, viðhaldi, nýlögnum, vatnsúðakerfum og neyðarútköllum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni.
Nú styttist í veturinn! — Yfirferð á Hitakerfi
Bank í ofni? Kaldur gólfhiti? Við förum yfir inntaks- og hitaveitugrind, geislahita, ofna- og gólfhitakerfi. Ekki lenda í því að uppgötva vandamálin þegar veturinn er genginn í garð. Bókaðu yfirferð núna og vertu tilbúin/n fyrir kuldann.
📋 Innifalið í yfirferð á hitakerfi:
- ✓ Alhliða yfirferð á staðnum: Sérfræðingur okkar mætir á staðinn og yfirfer kerfið ítarlega.
- ✓ Jafnvægisstilling á kerfi: Stillum flæði til að tryggja jafnan hita í öllum rýmum hússins.
- ✓ Bilanagreining: Bilanaleit og viðgerðir á ofnum, gólfhita, geislahita og hitakerfum.
- ✓ Lokar & stýringar: Yfirferð og liðkað upp á lokum, skoðun á þrýstijafnar og stýrilokum á hitastýringum.
- ✓ Inntak & öryggislokar: Skoðun á inntaksgrind, síum, þrýstingi og öryggisbúnaði.
*Ath. Tilboðsverð gildir fyrir stakar séreignir. Húsfélög, fyrirtæki og stofnanir eru vinsamlegast beðin um að senda inn almenna verkbeiðni til að fá tilboð sem miðast við stærð og umfang kerfisins.
*Ath. Ef skipta þarf út ónýtum búnaði eða varahlutum reiknast sá efniskostnaður og viðbótarvinna ofan á tilboðsverð.
Sérfræðingar í pípulögnum
Traustir píparar sem sjá um öll verkefni fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki.
Viðhald & Viðgerðir
Lekagreining, skipta um blöndunartæki, salerni, krana, og viðgerðir á ofna eða neysluvatnslögnum.
Gólfhiti & Ofnar
Uppsetning og yfirferð á gólfhitastýringum, varmaskiptum og ofnalögnum.
Vatnsúðakerfi / Sprinkler
Uppsetning á vatnsúðakerfum (sprinkler) fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.
Nýlagnir & Breytingar
Heildar pípulagnir í nýbyggingar, baðherbergi, eldhús og iðnaðarhúsnæði.
Senda Verkbeiðni
Heyrum í þér eins fljótt og auðið er.